Í dag er síðasti kennsludagur fyrir jól hjá okkur á starfsbraut. Á þriðjudaginn kl. 11:00 – 12:00 er prófsýning.
Skólinn byrjar aftur 7. janúar samkvæmt stundatöflu.
Gleðileg jól og hafið það yndislegt um jólin. Kveðja stelpurnar á starfsbraut 🙂
Næstkomandi miðvikudag, fimmtudag og föstudag (16. – 18. okt.) er frí hér í FVA vegna námsmatsdag og vetrarfrís. Við vonum að þið eigið eftir að hafa það gott í fríinu. Sjáumst hress mánudaginn 21. október 🙂
Nemendur í Útivistaráfanganum skelltu sér í Skorradal í blíðaskapar veðri og gistu þar í eina nótt í skátaskálanum. Mikið var gengið og fór lengsti hópurinn c.a 16 KM. Veðrið lék við okkur, sól, logn og 16 stiga hiti. Eftir gönguna fóru sumir að synda í vatninu til að kæla sig niður. Um kvöldið voru grillaðir hamborgarar og sykurpúðar og tekin nokkur spil. Bingó’ið var vinsælt þar sem mikið var um vinninga og ógeðisspilið frá Jellybean 😉